Thad er ekkert smá langt sídan ég hef nennt ad skrifa á thetta blogg. Ég vona ad thad baetist núna! (: Ég er farin ad venjast thessum breytingum landanna meira en ádur. Ég er líka komin í thridju fjolskylduna mína! :) .. ég bardist fyrir henni eins og barn fyrir uppáhalds leikfanginu sínu! (: Ég aeta ad segja ykkur adeins frá thessari fjolskyldu minni!
Onnur fjolskyldan var fjolskylda drottningar Guaranda. Thad bara gekk ekki ad reyna ad verda partur af fjolskyldunni. Svo mikid af vandamálum, lygum og stuldum! Aldrei til matur á heimilinu, fór hungrud í skólann, fjolskyldan horfin til annarra baeja um helgar án thess ad láta mig vita. Vaknadi ein í húsinu og vissi ekkert. Svo mikid af fleiri muuun verri vandamálum sem ég aetla nú ekkert ad vera ad deila med allri heimsbyggdinni. Ég eyddi mestum tíma mínum med fraenkum og ommu úr fyrstu fjolskyldunni minni! Thar vissi ég ad ég var alltaf velkomin, thau hofdu alltaf tíma fyrir hana litlu Valgerdi sína! Alltaf svo mikla ást! Ég sagdi AFS frá thessu ollu og thau heimtudu thad ad ég skipti um fjolskyldu sem ég gerdi med glodu gedi!! Ég fór úr annarri fjolskyldunni 1. nóvember af thví ad ég var búin ad finna mér sjálf hvar ég gat verid á medan thad var verid ad leita af annarri fjolskyldu hjá mér. Ég bjó hjá fraenku minni í viku. Thessi fraenka mín heitir Piedad(fyrirgefning) og er enskukennari. Hún vann mikid. Hún hefdi elskad thad ad hafa mig á heimilinu en gat thad thví midur ekki. Hafdi ekki tíma, hún vann svo mikid. Ég var rosalega ánaegd med henni og fjolskyldu hennar. Gat verid meira med ommu !:)
Á medan ég bjó hjá Piedad fraenku .. fyrsta kvoldid kemur madur frá Pakistan ad selja hringi og eyrnalokka. Hann kemur auga á mig og verdur yfir sig hrifinn. Hann tekur upp slaedu úr toskunni sinni og heimtar ad fá ad taka mynd af mér med thessa slaedu um hausinn á mér thar sem sást adeins í augun á mér eins og konurnar í hans landi og svo eina án hennar. Hann gefur mér thessa slaedu sem minningu um hann og hans land. Hann bidur um númerid mitt og býdur mér ad koma í heimsókn til sín til annarrar baejar hérna í Ekvador. Á naestu dogum hitti ég hann fyrir utan raektina, í skólanum mínum, fyrir utan húsid mitt. Hann fór víst til síns baejar eftir thad en kom aftur í leit af mér. Kom i bakaríid og spurdi um mig. Ég hitti hann úti á gotu og spurdi hann hvad hann vaeri ad gera hérna aftur. Hann svarar thví ad hann sé hérna ad leita af mér. Hann sé ástfanginn og úff !!! .. ég var ekki lengi ad segja vid hann ad ég aetti kaerasta og hlaupa á brott. Hann er víst á vappi hérna ennthá!
Eina helgina skellti ég mér til Ambato til Kolbrúnar! :) Ambato er heldur staerri baer en Guaranda. Í Guaranda eru adeins eitthvad um 20.000 íbúar en í Ambato býst ég vid thví ad thad séu u.t.b. 350.000. Vid áttum mjoog góda helgi! :) Skelltum okkur á diskótek á fostudeginum . Okkur leyst ekkert alltof vel á thad. Thad voru bara grunnskólaborn. Thannig ad viid skelltum okkur bara á pizzastad, átum og fórum svo heim og horfdum á mynd. Laugardagurinn .. úff .. Kolbrún býr í fjolskyldu fullri af módelum! :o Hún baud mig oll velkomna! (: Vid skelltum okkur í svona .. "íslenskan verslunarleidangur". Vid keyptum okkur fuullt af dóti :) Eyddum restinni af deginum í vinnu pabba hennar hlustandi á íslensk jólalog og njótandi ad vera til! Skelltum okkur heim, skiptum um fot og fórum í hús fraendans. Thar spjolludum vid saman, drukkum adeins wisky og hofdum thad notalegt! Skelltum okkur út á lífid. Donsudum vid Reggiton og Salsa! (: ekki ad hata thessa tónlist!!! Búin ad laera thad hvernig á ad njóta hennar!! :) Sunnudaginn .. fórum vid í sund og skelltum okkur í sólbad á medan vid bidum eftir thví ad fraenka mín kaemi ad pikka mig upp frá hofudborginni. Svona helgi aetlum vid ad upplifa aftur, naest hérna í Guaranda!
En jaeja .. thridja fjolskyldan Thetta er fyrsta fjolskyldan mín en adrir foreldrar. Ég vildi ekki adra fjolskyldu sem ég thekkti ekki. Ég taladi vid fraenkur mínar úr fyrstu fjolskyldunni og thaer voru velkomnar til ad taka mig inn í fjolskylduna. Amma vildi ad ég bjyggi hjá sér en thad var ekki haegt af thví ad fyrsta mamman vildi thad ekki og thad hefdi bara stofnad vandamál. Fjolskyldan inniheldur Mommu: Monica(ádur módursystir mín) Tvíburabraedur: Nicolas & Andy(19 ára) .. bestu braedur sem ég hef átt hérna í Ekv. oog Hundur: Kleo(Bulldog)
Ég er búin ad búa hjá thessari fjolskyldu í taepa 2 mánudi! :) Lídur roosalega vel hjá theim :P Oll ung og svo vinaleg! Ég og mamman erum bestu vinkonur hérna. Braedurnir sofa í sama herbergi svo ad ég geti átt mitt eigid! Ég er búin ad hafa thad rooosalega gott hérna! :) Vid mamman náum svakalega vel saman! Eldum saman, hofum karokekvold hérna thar sem ég, hún og vinkonur hennar skemmtum okkur langt fram á kvold. Vid erum rosalega líkar! :) Ég er eins og snýtt út úr nosinni á henni! Mér lídur roosalega vel hér! :) Allt breytt, engin vandamál!
Í skólanum gengur allt vel! (: Thessir ekvadorbúar eru rosalega gáttadir á thví hversu gódri spaensku ég er búin ad ná. Skil allt og tala vel! Sumir vilja halda thad ad ég sé frá Spáni:) Ég er ekkert lídid stollt af mér!:)
Svo eru thad jólin!! Jólin voru rosalega gód (: Vid klárudum ad versla jólagjafirnar á adfangadag! Ég keypti sídustu gjofina mína(handa kaeró). Vid fórum heim, gerdum okkur til og fórum til ommu um klukkan hálf 9. Thad voru ekki allir komnir. Vid klárudum eitthvad sem heitir Nacimiento og eru gerdir á hverju heimili. Thetta er svona lítil borg med byggingum og fólki sem nýtur jólanna eins og vid fólkid:) Vid hjálpudum svo vid ad elda. Thegar allir voru komnir thá fórum oll vid upp í herbergi og var farid med baenir! Svo var haldid lítid leikrit. Eftir leikritid kom jólasveinninn og skipti nidur jólagjofunum á alla. Thaer voru opnadar og svo var haldid nidur í bordstofu thar sem vid fengum kalkún med hrísgrjónum(klikkar ekki), salot og sveppasósa. Drukkum raudvín med matnum. Eftir mat fórum vid aftur upp í herbergi til ad tala saman, dansa og drekka. Ég held ad thad hafi verid drukknar 5 floskur af wisky og 2 floskur af raudvíni! .. Vid donsudum laaangt fram á nótt. Ég fór ekki ad sofa fyrr en eitthvad um fjogur leytid. Mér var bodid í jólahladbord til nágranna minna(án fjolskyldunnar minnar). Vinkona mín og foreldrar hennar budu mér. Tharna voru allir hennar aettingjar! :) Fengum roosalega gott ad borda og hvítvín med matnum
Áramótin voru frekar odruvísi en heima. 30.desember er allur heimurinn í Ekvador ad búa til eitthvad sem kallast Año viejo.. sem thýdir gamlár en er fígúra, madur, kona eda teiknimyndapersóna búin til úr pappírum, fotum og fleiru. Um 9 leytid var hringt í mig og mér var sagt ad koma upp í vinnu til Elionu fraenku thar sem vid aettum ad búa til año viejo saman! Ég skellti mér thangad og drakk med strákunum og spjalladi tangad til klukkan 11. Klukkan ellefu átti ég hádegisverdarbod heima hjá AFS fulltrúum. En ekki sem AFS fulltrúum heldur sem fjolskyldu! :) Ég er ekki ad hata thad ad vera uppáhalds skiptineminn í baenum og vera hluti af thessari fjolskyldu, vera bodid med í ferdalog, í mat ... úff! Fengum fiskisúpu, svo raekjur med hrísgrjónum!:) Ég skellti mér í thvottahúsid, thvodi fotin mín. Um kvoldid var GalaBall skólans míns haldid. Ég kíkti fyrst upp í vinnu til mommu, var thar ásamt vinnufélogum hennar ad dansa salsa! :D Vá hvad ég elska ekvadoríska tónlist! :D Skellti mér heim og gerdi mig til fyrir GalaBall. GalaBallid fór vel! :)
31. um kvoldid fór ég fyrst til ommu og fór med krokkunum ad labba um baeinn til ad skoda allar thessar pappírsfígúrur á leidinni til módursystur minnar. Ég eyddi áramótunum ekki med minni fjolskyldu heldur eyddi ég theim heima hjá tengdapabba:) Hann átti afmaeli nóttina fyrsta jan. Mamma keyrdi mig heim til kaeró. Húsid hans var ljóslaust. Vid gátum ekki verid thar. Fórum med mommu hans ad skoda um baeinn. Thetta var allt roosalega fallegt! Fullt af fólki gangandi um goturnar til ad skoda gamlárskallana! :) Vid fórum til pabba hans um klukkan 10. Fengum okkur ad borda medal fjolskyldumedlima og vina. Fengum thad sama og ég bordadi á jólunum en .. muuun betra! Stjúpmamma Steve eldadi. Vid sátum saman og drukkum fram ad áraMÓTUM. Thá fórum vid út og óskudum gamla til hamingju med daginn, kveiktum í áramótagamlingjanum og fognudum nýja árinu. Fórum inn, fengum okkur koku ! :) drukkum meira. Vid Steve kiktum adeins í heimsókn til fjolskyldunnar minnar! :) Stoppudum ekki lengi af thví ad okkur var bodid í stórt partý sem var haldid í Tennisklúbbnum. Ekkert smá mikid af fólki sem kom! Vid donsudum af okkur faeturnar! :) Mikid roosalega var thetta aedislegt kvold :) ..
Mamman vill ad ég komi med sér til Jamaika! (: Hvad segiru mamma vid thví!?!?! :D Geeeerdu thaad !! má ég fara?! :)
.. Ég vil óska ollum Gledilegra jóla og Gledilegs nýs árs! :) Thad styttist alltaf í thad ad ég komi heim! :) Ekki nema nokkrir dagar :P .. Bid ad heilsa! (:
Komin med nýja fjolskyldu. Thurfti ad skipta. Kannski ekki nema timabundid. Thad kemur allt í ljós.
Nýja fjolskyldan er aedisleg. Ég bý med mommu, 2 systrum, systursyni og bródur(tímabundid, hann býr og vinnur í Quito). Ég á fullt af systkinum og 3 mismunandi fedur(sem ég thekki ekki). Á heimilinu er hundur med 4 eins mánada hvolpa. Thad er ekki thvottavél á heimilinu. Oll fot eru handthvegin. Kannski ekki mikid um en thad er eitthvad um ad thad vanti vatn og mat á heimilid. Onnur systir mín sem býr med mér er 18 ára og var kosin Ungfrú Guaranda núna thetta árid. Hin er 24ra ára og á ca. 6-7 ára strák.
Á fostudaginn aettleiddi ég litla prinsessu! :) Hún býr í herberginu mínu, bordar vel, hvít eins og mamma sín! Og sérstok! (: rosalega stillt og thaeg. Hún er ekki nema tveggja vikna gomul. ......
ég er frekar tímatrekt svo ég blogga meira á thetta blogg thegar ég hef tíma
Loksins kemst ég í almennilega tolvu. Ég er búin ad reyna ad blogga í thrjú eda fleiri skipti. Alltaf eydst útaf. Frekar leidinlegt!
Ég aetla ad segja ykkur í stuttu máli hvernig thad er búid ad vera hérna í Ekvador!
Sídustu helgar eru búnar ad vera gódar!! :)
Eftir fyrstu vikuna i skolanum for eg med kennara og einhverjum nemendum a nautaat i smabae sem heitir San Miguel! Thetta var roosalega gaman! :) Thetta var ekki venjulegt nautaat heldur thar sem hver og einn gat farid inn a vollinn og atast i nautunum. Vinur Joao, Joao(bekkjarbrodir minn), eg & Jimmy <3
Fór á sunnudeginum til Chimbo, smábaejar hérna rétt hjá med fjolskyldunni og smakkadi naggrís. Med besta kjoti sem ég hef smakkad.
dúb dúb dúb .. ég ad grilla naggrísi!! mamma eignadist nýja vinkonu.. !!
Tharsídustu helgi fór ég til Salinas med AFS. Ekkert smá gaman. Thar heimsótti ég osta- og súkkuladiverksmidjuna. Ásamt thví ad sjá hvernig saltid er "búid til". Vid Valeria fórum svo í afmaelisveislu til vinar okkar og eyddum thar dágódum aedislegum tíma!
Ég og Krissi!! <3 Allar saman! (: asamt Gilbert og Augusto! Ostaverksmidjan.. Cristian(afmaelisbarn) ásamt systur og pabba sínum. Ég, Valeria, Franziska & Steve
Sídustu helgi fór ég til Salcedo og gisti á hótel Rumipamba ásamt 25 odrum skiptinemum frá naestu baejum. Hitti thar á medal Kolbrúnu og Bjart. Thví midur komst Ragnar ekki og gat thví ekki notid thess ad tala íslensku. Mikid rosalega var skrítid ad tala íslensku eftir heilan mánud. Thessi helgi var aedisleg! :D Ég tharf ad reyna ad hlada inn ollum myndunum af myndavélinni. Thad eru svo margar myndir sem thrá ad komast á bloggsíduna og einnig á facebook! :)
Eftir helgina byrjadi skólinn aftur. Á thridjudaginn var svakalegt átak á milli eins grunnskóla hérna í Guaranda og logreglunnar. Steinum kastad, gluggar í skólanum mínum brotnir, logreglumótorhjól eydilagt. Allt í voda. Skólanum var lokad og nemendum meinad ad yfirgefa skólann. Í gaer og í dag er búin ad vera rosalega barátta logreglumanna vid forsetann. Fólki hérna í Ekvador er meinad ad fara út úr húsum. Thad var enginn skóli í gaer. Allir í húsunum. Sem betur fer bý ég í litlum og gódum bae og haettan thví mun minni en í odrum baejum. Mér er leyft ad fara út med vinum en foreldrarnir thurfa ad vita hvar, med hverjum, hvad ég er ad gera og hvenaer ég kem heim.
Skólinn gengur vodalega vel! :) Ég er farin ad skilja mun meira en ég gerdi fyrst thegar ég kom hingad. Ég er farin ad tala slatta. Thau eru rosalega hissa á thví hversu fljót ég er ad laera. Ég fae rosalega mikla adstod frá mínum elskulegu vinum, kennurum og fjolskyldu.
Klukkan hérna er ekki nema hálf 3. Foreldrar mínir og litli bródir eru í bae sem heitir Guayaquil eins og er. Ég er hjá ommu á medan. Svo fer Renato(18ára) bródir minn til Canada á midvikudaginn í naestu viku. Thá fer fjolskyldan enn eina ferdina til Quito. Ég verd hjá ommu á medan. Ég get alveg búist vid thví ad vera hjá henni nokkrum sinnum í vidbót á medan á Ekvadordvolinni stendur.
Ég fékk leyfi til ad fara á netid til thrjú. Aetla mér nú ekki ad eydileggja thad traust sem ég hef og aetla ad blogga seinna! :) Ég reyni ad hlada inn myndum fljótlega. Vonandi naestu vikuna!
Fostudagurinn var frekar ómerkilegur fyrir utan thad ad skólabúningurinn var keyptur og vid fórum á korfuboltaleik. Á leiknum var okkur Krissi bodid í partý á laugardagskvoldid. Á laugardaginn fór fjolskyldan um hádegisbil í ferdalag til Quito og skildu mig eftir vegna thess ad ég thurfti ad maeta til skóla í dag(mán.). Finnst thad svosem fínt :D Á laugardaginn var ég med stelpunum frá AFS allan daginn :) eda til 6, thangad til ég fór og gerdi mig til fyrir thetta partý. Monica(systir mommu) & Ella(systurdóttir mommu) voru aestar í ad fá ad mála mig og greida mér, thad er minna um stelpur en stráka í fjolskyldunni og thaer fá sjaldan ad hafa afskipti af klaedaburdi og hárgreidslu strákanna sinna. Útkoman var rosalega gód:) Ég skemmti mér konunglega í thessu partýi, kynntist fullt af fólki á aldri vid mig og eldri. Ég var komin heim um hálf 2(Gód stelpa!:)). Í gaer(sunnud.) var ég vakin klukkan 7:00!! og sagt ad gera mig til fyrir sundlaugina. Ég bjóst vid einhverri lítilli sundlaug stutt frá, en thá ákvádu 3 fjolskyldur ad fara saman í risastóóran sundlaugagard sem er fleiri klst. hédan! Ég get ekki lýst theirri fegurd sem ég sá á leidinni:D Ég tók nokkrar myndir og aetla ad setja á facebook sem fyrst! Vid eyddum ooollum deginum í thessum gardi. Logdum af stad kl. hálf 8 og vorum komin heim rúmlega 6. Sóttum pilsid mitt úr saumun(?), ég mátadi búninginn og hann er bara helv. toff! :)
Haha!! Thetta fannst mer gaman! Geggjad!! Eins og vinur minn sagdi ,,svona gerist thegar Valgerdur sest undir styri!" ---- Fyrsti skóladagurinn var í dag. Mér var sagt ad skólinn byrjadi 8 á mánudogum en af thvi ad thetta var fyrsti skóladagurinn thá byrjadi hann ekki fyrr en um 9. Ég, Ella og Milo fórum saman. Milo fór til vina sinna á medan ég stód hjá Ellu. Mér leid rosalega skringilega, eiginlega bara illa ad vera tharna innan um allt thetta fólk, alla thessa krakka sem horfdu á nýju stelpuna sem er ad koma í skólann. Allir nemendurnir voru kalladir saman á einn stad. Ég stód tharna ein af nokkur hundrud krokkum. Ella benti mér á einhverjar stelpur sem hún sagdi ad vaeru med mér í bekk. Vid vorum í nokkrum beinum rodum. Hlustudum á tjódsong Ekvador og hlustudum á fullt af raedum. Svo var okkur bent á ad fara í thaer stofur eftir theim fogum sem vid hefdum sótt um ad vera í. Ég sótti um ad vera í sálfraedi, eda thad held ég alveg orugglega. Ég fór ásamt 9 odrum stelpum inn í einhverja stofu ásamt kennara. Vid erum ekki nema 10 stelpur í mínum "bekk". Í odrum bekkjum eru baedi kyn og mikid fleiri. Stelpurnar byrjudu á thví ad kynna sig fyrir mér med nafni, áhugamálum eda einhverju!! Ég nádi ekki EINU ordi thaer toludu svo hratt! Vonandi nae ég spaenskunni fljótlega. Sumar af thessum stelpum eru rosalega kammó. Mér lýst ágaetlega á thaer. Og ... ég er aldursFORSETI skólans! Elst ALLRA nemenda. Skólinn byrjar 7 í fyrramálid og er til 13. Skólinn í dag kláradist fyrir hádegi. Hann var búinn um 11leytid. Klukkan er núna 14:15 hérna. Ég lofadi Ellu fraenku ad vera ekki lengi á internetkaffinu. Svo ég hef thetta ekki lengra í bili! :D
Eg og minn eeeelskulegi bekkur!! (: i skolabuningnum....
Ég aetla ekki ad hafa thetta langt blogg. Ég tharf ad gera svo mikid í dag. Ég var í Quito í sídustu viku. Thad eina sem ég gerdi thar var ad leita ad fotum & versla med mami. Kom til Guaranda á fimmtudaginn, í gaer keyptum vid mami einhvern hluta skólabúningsins. Ég tharf ad vera i hvítum polo bol, dokkbláu pilsi, dokkblárri peysu merkt skólanum(Verbo Devino), hnéháum bláum sokkum og svortum skóm. Svo veit ég ekki afhverju en ég tharf ad vera í raudum ponsjó á mánudogum. :) Thetta verdur bara gaman. Vedrid í dag er freekar heitt, en thad er skýjad eins og er og rigning á koflum:S búid ad vera thad svona, seinnipart dagsins sl. 2 daga.
eg og Renato lot i Quito
Fjolskyldan mín er ad fara til hofudborgarinnar í dag, ég á ad gista hjá ommu fram á midvikudag:) Vid fraenkurnar, ég og 2 eldri, erum ad fara í sund á morgun kl. 07:00 :o Of snemmt! :o Svo verd ég samferda Emiliano fraenda í skólann naestu daga. Ég er búin ad setja myndir inn á facebook fyrir thá sem vilja skoda :) Búin ad taka fleiri, een thaer koma inn vonandi fljótlega:P Ég tharf ad fara í bankann :D .. svo er matur heima hjá ommu. Svo ég bid ad heilsa ad sinni :p Ég blogga vonandi fljótlega :p Kannski á morgun, ég aetla ad sjá til.
Fjolskyldan(-Renato) - Vala Escudero (eins og mami kynnir mig)
Ferdin fra Quito til Guaranda tok okkur 6 klst med rutu, vid thurftum ad stoppa a nokkrum stodum adur en vid komum i Guaranda. Leidin er rosalega falleg. En eg sa 2 dauda hunda a veginum :S thad er mikid um vilta hunda sem enginn hugsar um :( Svo voru skogareldar. Frekar sorglegt. Eg kynntist stelpu i budunum sem er med mer herna i Guaranda. Vid naum rosalega vel saman:) Hun heitir Krissi og er fra Thyskalandi. Thegar vid komum til Guaranda toku fjolskyldurnar a moti okkur. Mer var sagt ad nyja fjolskyldan inniheldi 2 systkin og foreldra. En eg a vist foreldra og 3 braedur. Eg man ekki enntha hvad mamma min heitir, en eg kalla hana Mami(mommu), hun vinnur stundum a bensinstodinni sem pabbi minn a. Pabbi minn heitir Edgar(Papi), hann a bensinstod og er mikid fyrir hanaslag. Elsti brodirinn er 20 ara og heitir Alejandro(Leo), hann er sa eini sem kann eitthvad adeins i ensku, midbrodirinn heitir Renato og er 18 ara svo er sa yngsti 10 ara og heitir Juan. Thegar vid forum heim syndu thau mer husid. Eg er med mitt eigid herbergi og eigid klosett a nedstu haedinni af 5 haedum!! Thetta er rosalega stort hus. Vid eigum "litinn" og saetan gard, thar er hundurinn minn geymdur :) Hun heitir Luna, svo er kanina. Eg a mitt annad heimili thar sem amma min, systur og brodir mommu og fraenka eiga heima. Vid erum thar oll kvold. Mamma og fraenka min budu mer ad koma med ser i raektina og aefa erobic (: eg hlakka til ad byrja. Eg verd i katholskum skola sem er vist ekkert erfidur. Skolinn byrjar 6.september. Skolatiminn er fra 7 a morgnanna til 1 a daginn, eg fae 2 hle. Eg er ekki entha buin ad sja skolabuningana en Emilana(vinkona leo) segir ad their seu finir. Eg er buin ad gera margt herna :) Kynnast vinum Leo, labba um baeinn, kaupa nyjan sima og fl. Emilana er su eina af vinum Leo sem talar ensku. Thad bjargar mer alveg. I gaerkvoldi forum eg, Renato, Camilla, Juan og papi og horfdum a hanaslag. Haninn hans pabba var ad keppa. Thetta var frekar blodugt og helst ekki eitthvad sem mig langar ad sja aftur! Leo og vinir hans hittust i gaerkvoldi heima, voru uti i gardi ad spila poker:) Thau budu mer ad koma med ser a strondina i 4ra daga ferdalag um helgia :D eg hlakka rosalega til! :) Okkur Leo kemur mjog vel saman! Nuna a medan mami, papi og Juan eru hja ommu forum eg & Leo a netstofu :D
Juan litli brodir The Central park in Guaranda Gardurinn heima! adeins partur af husinu heimilisbillinn
Eg aetla ekki ad hafa thetta mikid lengra i bili :) Mer lidur rosaleg vel! :D Eg held eg hefdi ekki getad fengid betri fjolskyldu herna uti! :D
Bid ad heilsa heim! :D <3 og set myndir a facebook thegar eg get! :)
Ég fékk hringingu frá LinduAFS og hún sagði mér að fósturfjölskyldan hefði dregið til baka umsóknina um að taka inn skiptinema vegna einhverra ástæðna.
En ég er komin með aðra fjölskyldu sem er tilbúin að hýsa mig í þetta heila ár :) Þær upplýsingar sem ég fékk um hana eru þær að Pabbinn heitir César Escudero og mamman heitir Ximena Camacho. Þau eiga tvö börn, annað er 18 ára og er að fara í háskóla í Quito og hitt er 7 ára:)
En jæja (: klára að gera mig til, fara í sturtu og svoleiðis :] Svo er það bara bless Ísland! (: og bless þið <3
Fór á fund í morgun í AFS með öllum krökkunum :) Þar fengum við allar þær upplýsingar sem við þurfum fyrir millilendingar og ferðina í heild. Við leggjum af stað á morgun kl. 17:00 frá Keflavíkurflugvelli til Boston. Við lendum klukkan 18:35 á Bandarískum tíma. Förum beint frá flugvellinum á Boston Logan hótelið :D gistum þar eina nótt og leggjum svo af stað frá Boston kl. 11:15 á föstudaginn til Miami. Lendum þar rúmlega tvö. Svo leggjum við af stað frá Miami til Quito rúmlega fjögur. Þessi flugferð verður á okkar eigin vegum. Við vinirnir þurfum því að hjálpast að :D Þegar við erum komin til Quito förum við á tveggja daga komunámskeið ásamt öllum 300 nemunum sem koma til Ekvador(skildist mér). Svo kveðjumst við og förum öll sína leið. Ég fer líklegast í rútuferð til Guaranda þar sem verður tekið á móti mér.
Vá hvað ég er ekki að hata það að vera að fara út á morgun. Ég er orðin svo spennt! Í gær hélt ég að spennan væri að breytast í stress, en það var bara vitleysa í mér. Það þýðir ekki að vera stressaður af því að ég veit að þetta er 150% þess virði. Ég er búin að pakka. Það er eitthvað aðeins eftir :) En að öðru leyti er ég tilbúin. Það eina sem ég á eftir að gera er að taka til í herberginu mínu svo það sé hreint þegar Villi kemur í heimsókn til Íslands um jólin <3 23.mars 2011 eru 3 ár síðan ég sá Villa síðast :'( Ég vona að hann njóti þess að koma til Íslands og vera hérna ásamt fjölskyldu og vinum:D Ég ætla til Japan árið 2012 :D Hlakka til að sjá þig þá elsku bróðir:) ég hef samband hingað heim um jólin! :)
Ég blogga líklegast ekkert á morgun áður en ég fer, svo að ég segi bara Bless :) Gætið litla fallega Íslands fyrir mig á meðan ég er í burtu! :) ég hlakka til að hitta ykkur að ári liðnu. Og ég vona að ég sjái sem flesta gesti á síðunni minni n_n! Ég á eftir að sakna ykkar! :)
Fékk bréf í dag um að ég ætti að leggja í hann kl. 17:00 19.ágúst! :) þá eru ekki nema 15 dagar í brottför! :D Fékk líka að vita það að ég lendi í Boston sama dag og legg af stað þaðan 20.ágúst til Miami svo beint frá Miami til Quito! :D !!
Jæja! :) þá er sumarið á Kirkjubæjarklaustri lokið! Þetta hefur verið svakalegt sumar. Margt af því sem skeði í sumar verður klárlega endurtekið aftur! Verslunarmannahelgin er að baki. Hún var og verður ógleymanleg! :) Þakka öllum fyrir frábæra helgi. Tók svo gærdaginn í það að kveðja nokkra vel valda Klaustursbúa! Svo var haldið af stað í bæinn. Vorum komnar í bæinn klukkan níu. Þreytan var svoo mikil að ég fór snemma að sofa!
Nú eru ekki nema 17 dagar í það að ég fari út og ég ekki ennþá farin að hafa samband við fjölskylduna úti(skammarlegt). Ég þarf að fara að gera það! Við Ekvadorfarar ætlum að reyna að hittast eitthvað og kynnast persónulega áður en við tökum þetta stóra stökk út í heim. Það er mikilvægt að við þekkjumst þar sem þetta verður löng ferð og erfið ferð. Við þurfum að stoppa í Bandaríkjunum einhversstaðar í millilendingu, veit ekki hvort það verði gist þar í eina nótt. En þar tekur einhver á móti okkur og aðstoðar okkur að komast á leiðarenda. Svo fljúgum við bara beint til Ekvador þar sem einhver/fjölskyldan kemur að sækja okkur og fylgir okkur "heim" ! :) Get ekki beðið eftir því að byrja þetta svakalega ævintýri! :D